Image

Hafkalk ehf. er fjölskyldu fyrirtæki í eigu feðgana Jörundar Garðarssonar og Jóns Garðars Jörundssonar og sérhæfir sig í framleiðslu og sölu á hágæða fæðubótarefnum án aukaefna. Hafkalk ehf. var stofnað árið 2000 með aðaláherslu á ræktun kræklings í Arnarfirði en hóf rekstur í núverandi mynd í janúar 2009. Hafkalk ehf. leggur mikla áherslu á hámarks gæði og hreinleika vörunnar og vinnur samkvæmt HACCP og GMP gæðastöðlum við framleiðsluna. Einungis eru notuð innihaldsefni af hæsta gæðaflokki fyrir allar framleiðsluvörur félagsins og jafnframt eru allar framleiðsluvörur fyrirtækisins lausar við fylliefni, kekkjavarnarefni og önnur óæskileg íblöndunarefni. Vottunarstofan Tún staðfesti á árinu 2012 að Hafkalk ehf. uppfylli reglur um framleiðslu náttúruvara og er fyrirtækinu heimilt að nota merki Túns á vörur sínar. Með vottun Túns er staðfest að Hafkalk noti einungis viðurkennd hráefni við framleiðslu á hinum vottuðu vörum, að aðferðir við úrvinnslu og blöndun samræmist reglum um framleiðslu náttúruvara, og að gæðastjórnun, skráningar og merkingar uppfylli settar kröfur.